Þurrt veður og sterkir vindar valda því að set frá jökulám verður loftborið og myndar sandfok. Dagana 19. og 20. nóvember má sjá greinilegt sandfok á suðausturlandi. Til dæmis frá farvegi Skaftár, þar sem töluvert af seti ætti að ver til staðar eftir nýlegt hlaup úr Eystri Skaftárkatli.
Vindhraði við Skarðsfjöruvita, sér í lagi hviður, voru yfir 10 m/s upp úr hádegi 19. nóvember skv. veðurathugunum á heimsíðum Veðurstofu Íslands.
Hér að neðan eru MODIS og Landsat gervitunglamyndir sem sýna sandfokið í kringum 13:50 þann 19. nóvember 2015.
MODIS mynd frá kl. 13:50 þann 19. nóvember 2015 (Image courtesy of NASA/Rapidfire).
Landsat 8 mynd frá 19. nóvember 2015 (Landsat 8 image from NASA and USGS).
Í Reykjavík hefur einnig verið töluvert mikið af svifryki vegna þurrs veðurs og vinds. Til dæmis fór styrkur PM10 yfir 200 µg/m3, 30-mín meðaltal þann 18. nóvember 2015.